Hverjir eru með besta netþjóninn? Er eitthvað varið í þessar “ókeypis” ADSL tengingar eða er þetta bara falið peningaplokk? Og ef það er eitthvað varið í þetta, er þá nokkuð vit í að vera að borga þennan massa pening í stofnkostnað/græjukostnað hjá Land$imanum?

Ok mörgum á eftir að finnast þetta lame grein því að ég er í raun ekki að gefa neinar upplýsingar heldur bara spurja spurninga… en ég gæti heldur ekki sagt frá reynslu minni hjá ÖLLUM ISPunum þannig að best er að allir commenti um þetta svo að fáist hlutlaus álit á ISPunum í staðin fyrir “já, við rokkum… á ég að skrá þig?” svörin sem maður fær í símanum hjá þeim

P.S endilega commentið um eitthvað þó að það hafi ekki komið fram í spurningunum sem ég sendi með… þær eru bara dropinn í hafið, miðað við allt sem hægt er að pósta hér um ISPana