Og Vodafone hefur tvöfaldað hraða á ADSL tengingum allra viðskiptavina félagsins með 512 kb/s tengingar. Nú eru þessir viðskiptavinir með 1 Mb/s tengihraða. Þetta er hluti af stærri breytingum sem gerðar hafa verið á þjónustu og vörunýjungum fyrir ADSL viðskiptavini Og Vodafone. Nýverið hóf félagið til dæmis að bjóða upp á ókeypis niðurhal frá útlöndum á sunnudögum eða allt að 500 MB. Þá er ADSL viðskiptavinum Og Vodafone boðið upp á Vefvarp eða frían aðgang að 500 erlendum útvarpsstöðvum um Internetið og er hægt að nálgast stillingar á vef Og Vodafone,
Allir hafa sínar skoðanir!!