Hugi.is Þetta er hræðilegur staður, ég held ég hætti alveg að koma hingað og er búin að vera rétt rúma 3 daga, maður er svo hrakkaður niður fyrir sínar skoðanir með dónaskap og kjaft, ég hef bara aldrei vitað annað eins, bara á þessum 3 dögum hef ég verið kölluð: Heimsk, rugluð,hrokafull, grunnhugsa með ömurlega skoðanir,

alveg argasti dónaskapur í fólki hérna á þessu littla landi.

Mér finnst þetta ekki holt, ég hélt að fólk hér myndi kannski tala um mismunandi skoðanir með opnum huga og seigja sínar skoðanir á móti, svona sem maður kallar rökræða… en nei fólk þarf að vera með svona gífurlegan ruddaskap kalla mann nöfnum.

Ég verð ekki hér mikið lengur en þessa 3 daga og get ekki sagt að ég hafi haft gaman af,

Ég vona að það séu ekki allir hérna svona dónalegir og hreynlega miskunarlausir í garð tilfinninga annara.