Yo!

Ég veit að allt tal um warez o.þ.h. er bannað á huga, en ég held að þetta falli ekki undir slíkt.

Þannig er að ég var að finna snilldar forrit sem heitir PeerGuardian, methlabs.org/methlabs.htm

Það sem það gerir er að halda skrá yfir ip-addressur þeirra sem eru að skoða hvað maður er með á share-inu hjá sér, til þess eins að a) hringja í lögguna og b) tilkynna internetþjónustuaðila viðkomandi um þetta.

Dæmi um ip addressur sem forritið blokkar eru addressur hjá bsa, RIAA, sony, EA, Warner o.fl. o.fl., samtals þegar þetta er skrifað 394966323 IPtölur frá 3406 aðilum.

Ég nota svolítið emule og kazaa lite og er byrjaður að nota PG með upp á síðkastið. T.d. startaði ég forritinu í dag fyrir klukkutíma síðan og síðan þá hefur það blokkað 3 aðila, hér er útdráttur:

Connection Rejected: 128.39.136.34 - Norwegian Telecommunications Administration (03-02-2004 @ 18:33:38)
Connection Rejected: 212.18.43.126 - bsa.si (correction) (03-02-2004 @ 18:40:15)
Connection Rejected: 139.91.201.7 - Foundation of research and Technology Hellas and IBM Netherlands N.V. (03-02-2004 @ 19:12:35)

… samtals 145 tilraunir hjá þessum 3, á klukkutíma til að tékka á mér!!!

Mér langaði bara að láta vita af þessu forriti, þar sem ég veit að bandaríska STEF (RIAA ef ég man rétt) og fleiri eru byrjuð að senda símanum og ogvodafone bréf um að notendur séu að dl myndum og lögum.
Svo er e.t.v. bara spurning hvenær bsa hefur starfsemi á Íslandi (sjá dreifingu á bsa.org), þannig að það er e.t.v. eins gott að hafa varann á.

Svona í lokin, á meðan ég var að skrifa þessa grein þá bættust 11 nýjar færslur við:
Connection Rejected: 128.121.215.173 - BSA.org (03-02-2004 @ 19:23:16)

… ég sem var að enda við að skrifa um bsa.org :)