Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti gefið mér
upplýsingar um vefhýsingu.

Málið er þannig með vexti að ég og vinir erum með heimasíðu þar
sem við skrifum alls kyns greinar og förum einnig á böll og
tökum fullt af myndum.

Nú þessar myndir eru náttúrulega margar og við erum löngu farnir
yfir það vefhólf sem við erum með (10mb). Svo við erum að
spekúlera hvort það er ekki einhver vefhýsing sem er að bjóða
upload á servarana frítt með unlimited vefhólfi.

Við reyndar vorum með svoleiðis á hostonce.com en þegar
margir voru að skoða síðuna þá var vefþjónninn þrisvar sinnum
lengur að opna síðuna.

Gæti einhver gefið mér góð ráð?

Með fyrirfram þökk,
Egill.<br><br><b><a href="http://www.heilabu.com">Heilabúið</a></