Málið hjá mér er að ég er að fá svo mikið ping. Þá aðallega í netleikjum. Ég er með 1,5 mbit tengingu hjá Landssímanum og er alls ekki sáttur. En ég var að spá hvort að einhver hefði lausn á þessu. Ég tengist í gegnum þráðlaust netkort (10 mbit) í router sem deilir tengingunni milli tveggja tölva. Ég er með alveg hrikalega slappa tölvu :þ

specs:
500 mhz P3
192 mb sdram
geforce 2 mx 400 64 mb

Ég var að pæla í því hvort að vélbúnaðurinn, þráðlausa nettkortið eða hvað sé flöskuháls út á netið

Öll svör eru vel þegin þannig að ef þú hefur einhverja hugmynd um lausn svaraðu