Ég hef rosalega gaman af að pikka á tölvuna mína og geri mikið af því öllum stundum.Fyrir nokkru tók ég mig svo til og fór að “surfa”netið.Kíkti á fyndnar heimasíður, innlendar sem erlendar og downloadaði í gríð og erg.Nú, ég náði mér svo í vírusa eins og óbólusettur pestargemlingur eða kirtlaveikur krakki.
Svo átti vélin það til að skrölta í stað þess að suða eða mala eins og hún var vön eða það sem var sett í tölvuna hvarf á mjög svo dularfullann hátt.Aðstoðar-englarnir mínir gerðu oft kraftaverk á tölvunni og ég gat haldið áfram eins og fríkaður Ástrali á háum brimbylgjum netsins..Júh húú.. Það var nú gaman.
Svo bættu þeir inn leik og leik fyrir mig.
Einn leikurinn var fyndinn. Ég klikkaði og Úps! komin inn á einhverja hvíta fleti þar sem orð og tákn runnu eins og regndropar niður rúðu.“Hey!You! Velkomin á irc!”Hafði fengið nickname og allt maur:cool-woman.
Ég lét vaða og pikkaði “hæ! eða halló!
Svarað um hæl og umræður fóru í gang ef umræður skyldi kalla, Allt á Mega-hraða. Hálf orð, tákn,hmmm.” (B-) og >:-/ ertu (O-O)ég er með &:-) hár…Well!!ég er alveg :-X Whatever“ svo einhver græn orð sem ég fattaði ekkert.
Ég sat dáleidd við skjáinn fram á rauðanótt..Shit!!! erfitt að hætta.Stundum var ég komin í eitthvert prívat-room og var spurð spjörunum úr..ask..algengasta spurningin var ”Hvað ertu gömul?“Djísus kræst! ” No fokkin hott date!“Mér stóð allt til boða. Faaar to kínkí!Aðrir voru skemmtilegir að chatta við.
Þetta er undarlegur heimur við fyrstu sýn irckið. Maður klikkar og er kominn inn. Mér fannst eins og allir lægju í leyni, þeygjandi í stórri byggingu.Maður er boðinn velkominn, voða kammó, ”Hvað segiru heillin?“ Flestir mjög almennilegir en aðrir furðulegir eins og gengur bara.Þegjandi við skjáinn getur maður ”hlustað“ á aðra bulla saman á rásunum oft virkilega gaman, hugarflugið á fullu.Ef maður vill skýtur maður inn orði og orði eða tákni ef maður kann þau.Ég hef ekki enn króað neinn inn á prívat-room. Kanske á það eftir..og þó.Þarf ekkert að vera neitt hugaður til þess.”Common!hver veit hver maður er???Yeah!!Freedom!!Maður er nobody….en..Passpå!!!!Ég fékk notice um að gæta orða minna, þeir geta neblilega hent manni útaf rásinni ef þú ert to kinkí eða kjaftfor. Þessvegna er ég bara að hugsa um að láta þennan GAME-OVER og halda mig á fyndnum heimasíðum í framtíðinni.Following me??
Cheerio Fruitcake