Helvítis blogg Nú er þetta blogg komið út í tóma vitleysu!


Annar hver notandi hér á huga eða hér um bil vísar á sína eigin bloggsíðu. Ef að maður slysast til að smella á þetta lendir maður inn á síðu sem segir t.d.:hitti Kalla í dag og við horfðum á vídeó.

Hvað í andsk… kemur mér það við þótt að Sigga og Kalli hafi horft á vídeó saman og hverjum er ekki skítsama um það. Þetta blogg er orðið að einskonar tískufyrirbæri og fólk er ekki menn með mönnum án þess að það bloggi. Einhverjir algerir nobodiar halda að þeir komist í svala gengið með því að blogga.


Eru ekki allir orðnir þreyttir á þessu?