Síminn semur við Narad Networks um tilraunir með byltingarkennda tækni á Breiðbandinu:

Síminn-Breiðband gerði í dag samstarfssamning við bandaríska hátæknifyrirtækið Narad Networks um tilraunaverkefni sem felur í sér byltingarkennda lausn í gagnaflutningum á Breiðbandinu. Sem dæmi eykst flutningsgeta á Breiðbandi við þessa tækni úr 10 megabitum, samanber Internet um Breiðband í 100 megabita sem margfaldar möguleika Breiðbandsins. Nýlega kom í ljós að hægt er að auka notkun á hefðbundnum sjónvarpsstrengjum og með þeirri tækni sem Narad býður hefur komið í ljós að breiðbandskerfi Símans er kjörið. Með því að nýta sér tæknina frá Narad þarf Síminn ekki að leggja ljósleiðara úr götuskáp og inn í húsin heldur eru lagnir frá götuskáp sem eru til staðar nýttar auk þeirra lagna sem eru á heimilum.

Samningurinn felur í sér að Narad leggur til búnað og aðstoð við tilraunina og Síminn leggur til vinnu og aðlögun að íslenskum aðstæðum. Gildistími samningsins er tveir mánuðir en tilraunin hefst í júní. Að henni lokinni verður metið hvort hægt verði að bjóða þessa þjónustu. Dev Gupta, forstjóri Narad Networks, segist vera mjög ánægður með að starfa með jafn framsæknu fyrirtæki eins og Símanum. “Okkur hefur gengið mjög vel að starfa með bandarískum fjarskiptafyrirtækjum í að bæta og breyta fjarskiptakerfum til þess að geta betur þjónað litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Síminn er að gera tilraunir með lausnir Narad fyrir einstaklingsmarkað. Þessar tilraunir koma Íslandi í fremstu röð í lausnum af þessu tagi,” segir Gupta. Tilraunir fyrir fyrirtækjamarkað eru þegar hafnar hjá stærstu kapalfyrirtækjum í Bandaríkjunun og Evrópu.

Narad hefur m.a. unnið að þróun á þjónustu í gegnum sjónvarpskapalkerfið en með þeirri aðferð sem þeir beita verður flutningsgeta til heimila aukinn gríðarlega frá því sem áður hefur þekkst. Í fyrstu verða gerðar tilraunir með 100 megabita á sekúndu, tengingar í báðar áttir, en í framtíðinni verður búist við 1000 megabitum á sekúndu tengingum og er það stóraukinn hraði miðað við það sem nú þekkist á markaðnum. Til viðmiðunar má nefna að langalgengasti hraði í ADSL fyrir heimili er 0,25 megabitar á sekúndu, og mesta flutningsgeta ADSL er 8 megabitar á sekúndu.

Með þeirri aðferð sem Narad býður má búast við því að möguleikar Breiðbandsins til að mæta öllum fyrirsjánlegum þörfum heimila á fjarskipta- og afþreyingaþjónustu verði tryggðir til framtíðar. Í dag hefur helmingur heimila á höfuðborginni aðgang að Breiðbandi Símans og á Múlasvæðinu hafa viðskiptavinir Breiðbandsins aðgang að Interneti um Breiðband. Uppbyggingu á Interneti um Breiðband á höfuðborgarsvæðinu verður lokið á næstu 12 mánuðum. Í næsta mánuði er gert ráð fyrir að Breiðholtið hafi aðgang að interneti um Breiðband.

Aukinn hraði auðveldar viðskiptavinum til muna að sækja efni af Internetinu. Auk flutningsgetunnar mun þessi nýja tækni verða til þess að notkunarvenjur fólks á Internetinu gerbreytast og efnið sem sótt er kemur samstundis. Tæknin opnar gríðarlega mikla möguleika á nýrri þjónustu eins og til dæmis alvöru myndveitu það er fólk getur pantað myndir og annað efni af netinu. Auk þess verður DVD leiga sem virkar jafnt fyrir bíómyndir og leikjatölvur, t.d. Playstastion2 auðveldari. Myndirnar og leikirnir eru sóttir yfir kerfið á örskammri stundu. Síðast en ekki síst færist gagnvirkt sjónvarp nær þegar gagnahraðinn er orðinn svona mikill og er þá rétt handan við hornið ef tilraunirnar heppnast vel.

Narad Networks er hátæknifyrirtæki sem stofnað var fyrir tveimur árum og þróar og vinnur að lausnum sem auka flutningsgetu á kapalkerfum með nýrri tækni og þjónustu. Fyrirtækið er staðsett í Westford í Massachusetts og er jafnframt með skrifstofur í Atlanta, Denver, New York og Washington D.C og London.