Frétt tekin af heimasíðu <a href=http://www.ruv.is“>Ríkisútvarpsins</a>.

”Ísla ndssími hefur farið þess á leit við Samkeppnisstofnun að hún kanni hvort verðlagning á ASDL
þjónustu Landsímans sé eðlileg.

Íslandssími segir kvörtun sinni til Samkeppnisstofnunar að hvað varði internet þjónustu þá tíðkist
það að notandi sé látinn greiða fyrir þau gögn sem hann sækir inn á netið og hleður í eigin tölvu.
Í flestum tilfellum sé þetta þó selt í pakkaformi þannig að hver notandi megi hlaða ákveðnu magni
upplýsinga af netinu inn í tölvuna sína á mánuði. Í því sambandi skipti ekki máli hvort verið sé
að sækja gögn frá netþjónum innanlands eða erlendum netþjónum.

Íslandssími segir að Landssíminn hafi um nokkurt skeið notað aðrar aðferðir það er ekki tekið
gjald fyrir gögn sem sótt eru á netþjóna innanlands, en tekið gjald fyrir þau gögn sem menn hlaða
í tölvur sínar frá erlendum netþjónum. Þetta skekki samkeppnisstöðu á markaðnum þar sem erlendi
hluti þjónustunnar niðurgreiði í raun innlenda hlutann. Það liggi fyrir að rekstur innanlandshluta
Landsímans sé ekki ókeypis og því felist í þessu niðurgreiðsla af hálfu Landsímans.

Íslandssími fer því þess á leit við Samkeppnisstofnun að hún kann málið. Fréttastofa RÚV sagði
frá því fyrr í vikunni að Dönsk samkeppnisyfirvöld ætli að rannsaka hvort TDC, áður Tele Danmark,
hafi brotið samkeppnislög með óeðlilegri verðlagningu á ADSL þjónustu.“


<b>Mótmælum kæru Íslandssíma!</b>

<a href=”http://www.clandoa.is/adsl/">http://www.clandoa.is/adsl/</a> - Undirskriftarlistinn
<a href="http://www.linuxhome.org/if/">http://www.linuxh ome.org/if/</a> - Smá myndasaga :)
<a href="http://www.hugi.is/hl/greinar.php?grein_id=36944 ">Umræðan um málið hér á huga</a