veit ekki hvort þetta eigi heima á þessu áhugamáli, ef svo er ekki, hendið þessu þá bara í sorp, en þetta er ágætis áróður gegn ruslpósti. Ég veit ekki hvar þetta er upprunið en fékk þetta í tölvupósti einn daginn.Gjörið þið svo vel:


Þessi skilaboð eru eitt stórt FUCK YOU til allra þeirra sem
hafa ekkert betra að gera en að senda mér heimskuleg keðjubréf í tölvupósti.

Halló, ég heiti Basmati Kasaar. Ég þjáist af sjaldgæfum og lífshættulegum
sjúkdómi, lélegum einkunnum á lokaprófum, áralöngum sveindómi, hræðslu
við að vera rænt af mannræningjum og líflátinn með raflosti í endaþarm og
sektarkennd yfir því að senda ekki áfram 50 billjón helvítis keðjubréf
sem ég hef fengið send frá fólki sem trúir því virkilega að ef maður sendir
þau áfram, þá muni aumingja kellingin í Arkansas, sem er með brjóstið á
enninu, safna nægum fjármunum til að láta fjarlægja það áður en
rauðhálsarnir foreldrar hennar selja hana í viðundrasýningu sem ferðast
um landið vítt og breitt.



Trúir þú virkilega að Bill Gates ætli sér að gefa þér og öllum öðrum sem
senda áfram tölvupóstinn “hans” 24,800 dollara?

Hversu mikill hálfviti ertu?

Úúúúúú, sjáðu þetta! Ef ég skruna niður þessa síðu og óska mér, þá fæ ég
drátt hjá öllum Playboy stelpunum sem eru í nýjasta tölublaðinu!

Þvílíkt og annað eins kjaftæði.




Kannski munu vondu keðjubréfaálfarnir koma heim til mín og misþyrma mér í
boruna á meðan ég sef, fyrir það að hafa ekki haldið áfram keðjunni sem
Jesús kom af stað árið 5 e.K. og kom til Bandaríkjanna í formi dvergvaxinna
pílagríma um borð í Mayflower og ef það lifir af til ársins 2000 þá kemst
það í Heimsmetabók Guinness fyrir lengstu óslitnu hrinu af blygðunarlausri
heimsku.

Fari þeir til andskotans.



Ef þú ætlar að senda eitthvað áfram, sendu mér þá að minnsta kosti
eitthvað sem er ofurlítið skondið.

Ég er búinn að sjá allar þessar “sendu þetta áfram til 50 bestu vina
þinna, og þessi aumingjans, skammarlega afsökun fyrir manneskju mun einhvern
veginn fá fimmkall frá einhverri almáttugri veru” tölvupóstsendingar u.þ.b. 90
sinnum. Mér er alveg skítsama.



Reyndu að sýna vott af skynsemi og hugsa um hvað þú ert í raun að afreka
með þessu öllu saman.

Allar líkur eru á að þú sért aðeins að auka á þínar eigin óvinsældir.


FJÓRAR GRUNNTEGUNDIR KEÐJUBRÉFA:



KEÐJUBRÉF - Tegund 1:

( skrunaðu niður)



















Óskaðu þér!!!























Nei, svona, í alvöru, óskaðu þér!!!





















Slappaðu aðeins af, hún fer aldrei út með þér!!!

Óskaðu þér einhvers annars!!!



















Ekki þetta, öfugugginn þinn!!!





















Ertu ekkert að þreytast í puttanum?































HÆTTU!!!!

Var þetta ekki gaman? :)







Ég vona að þú hafir óskað þér einhvers skemmtilegs. :)



Jæja, til að láta þig fá samviskubit, þá ætla ég að segja þér eftirfarandi.



Til að byrja með, ef þú ekki sendir þetta til 5096 manns innan fimm
sekúndna, verður þér nauðgað af brjálaðri geit og hent fram af hárri
byggingu ofan í mykjuhaug.



Þetta er satt! Vegna þess að ÞETTA bréf er ekki eins og öll gervibréfin,

ÞETTA er ALVÖRU!! Alveg satt!!! Svona virkar þetta:



Sendu þetta áfram á einn einstakling: Einn einstaklingur verður fúll út í
þig fyrir að senda honum heimskulegt keðjubréf.



Sendu þetta áfram á 2-5 manns: 2-5 manns verða fúlir út í þig fyrir að
senda þeim heimskulegt keðjubréf.



Sendu þetta áfram á 5-10 manns: 5-10 manns verða fúlir út í þig fyrir að
senda þeim heimskulegt keðjubréf og gætu sameinast um að stytta þér aldur.



Sendu þetta áfram á 10-20 manns: 10-20 manns verða fúlir út í þig fyrir
að senda þeim heimskulegt keðjubréf og munu sprengja upp húsið þitt.



Takk!!!! Gangi þér vel!!!













KEÐJUBRÉF - Tegund 2:



Halló, og takk fyrir að lesa þetta bréf.

Sjáðu til, um er að ræða lítinn, sveltandi dreng í
Baklaliviatatlaglooshen sem er handalaus, fótalaus, munaðarlaus og geitalaus.

Lífi þessa drengs er hægt að bjarga, því í hvert sinn sem þú sendir þetta
áfram, verður einn dollari gefinn í “Litli sveltandi, fótalausi,
handalausi og geitalausi drengurinn frá Baklaliviatatlaglooshen”-sjóðinn.



Já og mundu líka að við höfum enga aðferð til að telja tölvupóstinn sem
sendur er og þetta er allt saman grábölvað kjaftæði.

Svo láttu verða af því, réttu út hjálparhönd.



Sendu þetta til fimm manns á næstu 47 sekúndum.



Ó já, smá áminning

- ef þú sendir þetta óvart til fjögurra eða sex einstaklinga, munt þú
deyja samstundis. Takk aftur!!











KEÐJUBRÉF - Tegund 3:



Hæ hæ!! Þetta keðjubréf hefur verið til síðan 1897.

Þetta er alveg ótrúlegt þar sem tölvupóstur var ekki til í þá daga og
örugglega ekki eins mikið af brjóstumkennanlegum drullusokkum sem höfðu
ekkert betra við tímann að gera.

Og svona virkar þetta:



Sendu þetta áfram á 15.067 manns á næstu sjö mínútum eða eitthvað
hræðilegt mun koma fyrir þig, eins og til dæmis:



Stórfurðuleg hryllingssaga #1

Miranda Pinsley var að ganga heim úr skólanum á laugardegi.

Hún hafði stuttu áður fengið þennan tölvupóst og hunsað hann.

Skyndilega hnaut hún um skemmd í gangstéttinni, datt ofan í ræsi,
gusaðist eftir holræsakerfinu í kúkaflóði og flaug að lokum fram af fossi.

Ekki einasta lyktaði hún illa, heldur dó hún líka. Þetta Gæti Komið Fyrir
Þig!!!



Stórfurðuleg hryllingssaga #2

Dexter Bip, 13 ára drengur, fékk keðjubréf í tölvupósti og hunsaði það.

Seinna þann dag varð hann fyrir bíl og sömuleiðis kærastinn hans (hey,
sumir sveiflast í þá áttina).

Þeir dóu báðir og fóru til helvítis og voru dæmdir til að borða yndislega
kettlinga á hverjum degi um alla eilífð.

Þetta Gæti Líka Komið Fyrir Þig!!!



Mundu að þú gætir endað eins og Pinsley og Bip. Sendu bara þetta bréf á
alla lúseravini þína og allt verður í stakasta lagi.











KEÐJUBRÉF - Tegund 4:



Eins og þér sé ekki sama, þá er hérna ljóð sem ég samdi. Sendu það til
allra vina þinna.



Vinir.

Vinur er einhver sem er alltaf við hlið þér.

Vinur er einhver sem líkar við þig þó það sé skítalykt af þér og
andremman út úr þér sé eins og þú hafir verið að borða kattamat.

Vinur er einhver sem líkar við þig þó þú sért jafn ljótur og hattur
fullur af rassgötum.

Vinur er einhver sem þrífur þig eftir að þú ert búinn að gera í þig.

Vinur er einhver sem er hjá þér alla nóttina á meðan þú grætur yfir
ömurlegu lífi þínu.

Vinur er einhver sem þykist líka við þig þó hann vilji frekar að þér sé
nauðgað af geðveikum simpönsum og síðan kastað fyrir óða hunda.

Vinur er einhver sem þrífur klósettið þitt, ryksugar og tekur svo við
ávísuninni og fer og talar ekki mikla ensku… nei, fyrirgefðu, það er
húshjálpin.

Vinur er einhver sem sendir þér keðjubréf af því að hann vill að óskin
hans um að verða ríkur rætist.



Sendu þetta nú áfram! Ef þú gerir það ekki muntu aldrei stunda kynlíf
framar.









Hver er svo punkturinn með þessu öllu saman?

Ef þú færð keðjubréf sem hótar því að skilja þig eftir dráttarlausan og
lánlausan það sem eftir er lífs þíns hentu því þá.

Ef það er fyndið skaltu senda það áfram.

Ekki vera að pirra fólk með því að láta það fá samviskubit yfir
tannlausum holdsveikisjúklingi frá Botswana, sem hefur verið bundinn við dauðan fíl
í 27 ár, og hans eina von er túkallinn sem hann fær ef þú sendir þetta bréf
áfram, annars endar þú eins og Miranda. Ekki satt?

Sendu þetta nú áfram til allra sem þú þekkir, annars þarftu að sjá mig
nakinn!