Síminn Internet hefur nú tekið í notkun splunkunýjan spjallþjón, irc.simnet.is. Vélin er tengd IRCNet, einu allra stærsta ircneti veraldar. Undir Vélarhlíf HP LP 1000r vélarinnar er ekki vélbúnaður af verri endanum:

-Intel Pentium 3 866 MHz örgjörvi
-512 MB minni
-SCSI Raid controller + 2x18 GB harðir diskar, hotswappable
-2 Netkort

Spjallþjónninn er kominn í fulla þjónustu, þótt enn sé hann í prófun. Nú fyrir 10 mínútum voru um 100 notendur tengdir þjóninum, sem verður að teljast afbragðsviðtökur á þeim sex klukkustundum sem hann hefur verið opinn.

/server irc.simnet.is :)