Hver er ekki orðinn leiður á að fá sent til sín tuttugu til fjörtíu sinnum á dag eitthvað í þessa átt:

“Á morgun er Alþjóðlegi klíp í brjóst dagurinn, sendiru þetta til 10 á msn listanum þínum mun ástin þín kyssa þig innan viku ef að þú sendir þetta til 15 þá mun ástin þín verða hrifin af þér ef að þú sendir til 20 eða fleiri muntu byrja með ástinni þinni innan mánaðar, ef ekki þá verður næsta vika ömurleg!!!”

Já ef að maður fær svona þá pirrar það mann…

En hver hagnast á því að gera svona?
- Enginn!

Ef að ég fæ sent svona oft og þetta er farið að pirra mig sendi ég þetta til allra á msn listanum til að reyna að koma fólki í ljós um það hversu pirrandi þetta er, en það virkar ekki.

Hvað með fólk sem að er með 9 á msn-listanum sínum online eða færri eiga þeir þá bara að eiga ömurlega viku…
Svona töfralausnir virka engan veginn og vorkenni ég fólki ekki sem að getur ekki sent þetta til allra.

Þetta fer að verða til þess að maður eins og ég sem að notar þetta nokkuð mikið bæði til að hafa samband við ættingja í útlöndum og vini hér heima, fer að hætta að nota þetta ágætis afþreyingarforrit ef að það er ekki misnotað.

Ég skora á alla að hætta þessu…

Hverjar eru ykkar lausnir við þessu endilega, þó að ég sjái enga í fljótu bragði.
Jæja þá er komið nóg af þessu í bili…

——————————————– ——————
Ef að þú hefur hugmynd sem að væri hægt að framkvæma til að sporna við þessu vertu þá óhrædd/ur við að senda mér skilaboð og ég gæti fengið áhuga á að vinna hana með þér.
————————————————- —————–

Kv. BinniGuð