http://www.job.is/common/job.asp?id=133091&url=www.inte rnetworking.is

Ég veit ekki hvort þetta eigi heima hérna. En kíkið á þetta. Ég myndi vilja vita hvaða þríhirningasvindl þetta er.

Ég þekki marga sem hafa skráð sig í svona og ég er meðal þeirra. Síðan hringir e-h í þig og spyr þig hvort þú hafir áhuga. Síðan þegar maður spyr hvað þetta er, fær maður enginn svör. Ég hef spurt alla sem hafa farið í eitthvað svona hvað sé í gangi og enginn getur svarað því.

Hefur einhver hérna svipaða reynslu eða veit um hvað þetta nýja “trapisu svindl” snýst um?

Það er alveg merkilegt að það sé hægt að vinna sér inn, um eða yfir 500.000 kr. á mánuði fyrir eitthvað sem enginn virðist hafa hugmynd um hvað er. Ekki einu sinni þeir sem eru að selja manni boðskapinn.

Ég álykta að maður þurfi fyrstu 4 mánuðina að borga fullt af peningum og fái þá síðan til baka ef maður getur platað aðra með.

Endilega leiðréttið mig ef þetta er rangt hjá mér….