Sæl veriði.
Þar sem fyrrum stjórnandi á /myndlist, crazybirdlady, vék frá störfum sótti ég um og tók loks við stöðunni.
Ég vona að sem flestir séu sáttir við það :) Þannig stjórnendur eru aftur orðnir tveir.

Ég vona að ég geti haldið þessu áhugamáli vel gangandi en ég get það auðvitað ekki án ykkar.
Ef þið eruð með einhverjar hugmyndir til að bæta þetta áhugamál látið endilega heyra í ykkur ;)

Ykkur er alltaf velkomið að banka í mig ef ykkur vantar hjálp við eitthvað eða viljið einfaldlega spjalla um myndlist.

Ég held að það sé ekki fleira í bili :)
kveðja Ameza