Fan-art keppni á /hp
Það er fan-art keppni á Harry Potter áhugamálinu og er þetta auglýst hérna líka til að bæta virkni keppninnar.

Reglur:

Myndin þarf auðvitað að innihalda einhverja persónu úr Harry Potter bókunum, fan-fiction karakterar teljast ekki með. Mynd sem ekki stenst þetta verður höfnuð.

Það má hafa aðrar persónur sem eru ekki í bókunum, eða tengjast ekki Harry Potter á neinn hátt, svo fremi sem einhver persóna úr Harry Potter er með.

Myndin má ekki vera stærri en hámarkshæð(minnir að það sé 1024x768). Ef myndin er verulega lítil verður hún höfnuð og beðið ykkur um að stækka hana.

Það skiptir engu máli hvort hún sé unnin í tölvu eða handgerð.

Stjórnendur áhugamálsins geta ekki fullkomlega vitað hvort þið gerðuð myndina eða ekki, svo þau þurfa bara að treysta ykkur. Látið þá vita ef þið hafið séð ákveðna myndina á öðrum stað og sendið sabbath link.

Hámarksmynd á mann er ein mynd. Ef margir biðja stjórnenduna um að hafa tvær myndir verður það leyft. En það fer ekki yfir tvær.

Það er óvíst hversu lengi keppnin verður, hún verður allavega til 15. júlí. Ef keppnin er virk mun hún vera lengur.

Ef þið hafið einhverjar spurningar skuluð þið spyrja sabbath

Vil líka benda á að það geta liðið nokkrir dagar þangað til myndirnar ykkar verða samþykktar. Svanaerla og sabbath vinna utan tölvu og hinir stjórnendurnir hafa ekki verið virkir síðustu mánuðina.

Vona að það verði góð þáttaka.

sabbath

Munið að senda myndirnar á Harry Potter áhugamálið, ekki hingað á /myndlist :)