Það hefur ekkert heyrst frá Wolvie nýlega, og ég hefur engan aðgang að myndunum sem sendar voru í seinasta þema þar sem átti að senda þær í einkaskilaboðum til hennar. Þannig að ég veit ekki alveg hvort eða hve margar myndir voru sendar inn.

Ég er að pæla í að breyta reglunum aðeins með innsendar myndir í myndaþemun út af þessu.
Hvernig væri að senda myndirnar bara á myndakorkinn merktar “Nafn myndar - Þema1” í staðin fyrir að senda einkaskilaboð til annarhvors stjórnandans?
Þá höfum við báðar aðgang að myndunum og þá er auðveldara að senda inn myndir í þemun.

Og svo… Hvað með að hafa næsta þemað Bannerkeppni? Þið búið þá til nýjan banner fyrir þetta áhugamál og kosið verður um flottasta bannerinn.
Ég satt að segja hef ekki hugmynd um hve stór bannerinn á að vera, ætla að komast að því á næstunni.

Ég set allavegana inn tilkynningu um þetta á myndaþemakubbinn þegar allar nauðsynlegar upplýsingar eru komnar!
I C U P