þetta byrjaði allt á því að vinur minn var að horfa á litlu lirfuna ljótu og mér leiddist alveg óendanlega mikið svo ég fór bara að teikna, ég byrjaði á því að teikna bara eitthvað útí loftið og fann það upp að þetta leit út eins og hlið svo ég bætti bara aðeins smá hornum við XD
þetta er mynd sem ég teiknaði í módelteikningu í skólanum, er í myl 103 semsagt minn fyrsti áfangi. þetta er ein af mínum bestu myndum og ég er mjög ánægður með jafnvægið í henni og alla skugga og allt
þetta er teiknað með kolum á 1,70x1,0 stórann pappír á 20+20+15 min :)
Þetta er bangsamynd sem ég gerði klukkan 4 að nóttu til fyrir tveimur árum síðan um jólaleitið :O)… gat bara ekki sofnað. Þetta er semsagt mynd af bangsanum mínum með jólahúfuna á hausnum. Fannst það dramatískt á einhvern hátt, líklega vegna þess að einhverntíma á lífsleiðinni trúði maður því að tuskudýrin sín myndu lifna við eða væru lifandi. Bangsinn minn passaði mig alltaf svo endilega, vantar álit á þessa mynd ;O)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..