ég var bara eitthvað að dúddla í myndlistarsögu og þetta kom út
        
      
        
        Okei þetta er vinnslan á týpískri mynd hjá mér, ákvað að setja þetta inn til gamans. Það er ekki 100% að ég vinni allt svona og t.d. síðasta skrefið (liturinn á línurnar) er mjög duttlungum háð. 
        
        Mynd sem ég er búin að vera að vinna að síðasta mánuðinn, og ég er nokkuð ánægð með hana þótt að hárið varð dálítið skrítið, en ég er ennþá að prófa mig áfram í burstunum og ég skil ekki hvernig hægt er að gera hár svona flott með þessum burstum, mér finnst enginn vera nógu mjúkur =/