Spilling Jæja, ég teiknaði persónuna hérna um daginn en var að klára myndina í gær. Notaði mynd af google fyrir bakgrunnstexture-ið, en með þónokkrum breytingum. Allt annað er original, og ég lék mér aðeins með penslana í Photoshop.

Ég notaði Photoshop CS4 og Wacom Bamboo teikniborðið mitt við tölvuvinnsluna, en teiknaði persónuna á gamla góða blaðið ;) Litlar sem engar breytingar á henni, nema bara lagfæringar á línum og slíkt.