Hár? Eftir ekkert of góðar viðtökur frá andlitslausu myndunum mínum breytti ég einni myndinni. Strokaði út hárið og gerði það upp á nýtt og teiknaði á hana andlit. Ég veit að eyrað er ALLT OF lítið en það varð bara að velja milli þess að hafa risastórt eða svona því ég er ómöguleg í eyrum.
Mig langar mest í álit á því hvernig mér tókst að hafa hárið á henni!
Gerði eins og flestir sögðu; teikna höfuðkúpuna fyrst…