s.s. ef þetta á að vera venjulegur vasi þá eru grunnformin eftirfarandi(frá botni til topps): Sívalningur, kúla, sívalningur og sívalningur.
Hins vegar ef við höfum í huga hvernig skuggarnir eru teiknaðir(ljós kemur frá vinstri) þá þyrfti kúlan að vera nánast flöt á einum stað og útstæð á öðrum. Það sést á því hvernig hvíti flöturinn sem er ekki teiknað á fer óeðlilega langt inn á kúluna og ef það ætti að vera svona sléttur flötur og útstæður út frá slétta fletinum þá eru skuggarnir í kringum “útstæða” flötinn vitlausir. Svo er líka of mikið ljós á vasanum í botninn. Það vantar líka dökkan skugga á sívalningnum neðst undir kúlunni.
Skuggarnir gætu samt staðist ef vasinn væri afmyndaður(en jafnvel þó hann væri það þá eru skuggarnir enn vitlausir) eða hlutur stæði fyrir vasan þannig að ljósið falli skringilega á vasan.