Illfygli Fór að skissa einhverja fugla núna og þá fæddist þessi mynd eitt kvöldið. Dró fram gouache litina mína og málaði á vatnslita pappír 24x17 cm.
Er bara nokkuð sátt við hana(nema litirnir eru aðeins skærari í raun, skanninn er örugglega að verða gamall). Gerði svo aðra úrvinnslu sem ég mun líka senda inn.