“Finnst þér vanta meiri áherslu á myndlist frægra listamanna á áhugamálið?”

Mér fannst tilefni til að ræða þetta því nú er frekar lítið að gerast svosem á myndakubbnum og það væri hægt að bæta hann töluvert með því að senda inn myndir frá öðrum listamönnum. Ég er samt ekki á því að það þurfi að vera frægur listamaður, geti líka bara verið listamaður sem þú fannst á deviantart sem er alveg frábær (muna samt að senda alltaf inn link á listamanninn með myndinni).

Það væri alveg hægt að lífga aðeins upp á áhugamálið með opinni umræðu um listamenn, listaverk og list yfir höfuð. Hvað finnst notendum hér?