sæl.

ég er hér að skrifa fyrir konu sem auglýsir eftir manneskju hérna sem er tilbúin að teikna fyrir hana tattoo ..

hugmyndin er þessi:

“Mig vantar svo að láta teikna fyrir mig 10-12 cm stóran engil sem situr á skýi og er að blása sápukúlur, og kúlurnar eiga að vera 3 (ein fyrir hvert barnabarn mitt) og það á að sjást einungis bakhlutinn á englinum.
þetta verður svo tattoo á bakinu á mér.
engillinn þarf ekki að vera svona fancy heldur barnalegur”

þar er það, þetta er semsagt hugmynd konunnar sem vantar þetta tattoo, eins og þið sjáið er hugmyndin grófgerð og fólk má leika sér með þetta svolítið, en þetta er það sem þarf að vera amk á myndinni :)

endilega hafið samband við mig ef þið hafið áhuga á að taka þetta að ykkur, ég get þá sent ykkur email þessarar konu í einkapósti svo þið getið haft frekara samband við hana, og sent henni mynd ef þið hafið áhuga á því.