Það virðist sem stjórnendur hafi gleymt að líta á könnunina áður en þeir settu inn nýja þemað. Eins og glögglega má sjá á síðustu könnun um næstu þemu nutu þrjú þemu meiri vinsælda en tilfinningaþemað, en það eru Psychadelic með 18% og Teiknað eftir ljósynd að vali stjórnenda og Gömul goðafræði með 14% hvor.

Hefði ég ekki verið í burtu frá internetunum yfir páskana hefði ég að sjálfsögðu minnst á þetta fyrr, en ég vil engu að síður biðja ykkur að leiðrétta þennan misskilning þótt seint sé í rassinn gripið. Sjálfur nýtti ég t.d. tækifærið i sjálfskipaðri páskaútlegð minni og teiknaði tvær myndir fyrir það þema sem ég taldi vera næst á dagskrá, og hafði hlakkað mikið til að taka þátt í, Psychadelic þemað.

Með bestu kveðjum, Teto.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.