Ég póstaði þessu fyrst inn á Húðflúr og Götun og var bent á að setja þetta hérna líka :D

Mig langar svolítið að fá mér tattú þegar ég verð 18 þann 3. mars og ég veit hvað ég vil. En ég kann sjálf ekki að teikna og ég finn enga flotta mynd á netinu svo ég ætla að bjóða ykkur rosalega fallega ef ykkur leiðist að teikna handa mér mynd, alveg ókeypis! :D

Mig langar semsagt í maríubjöllu, eða maríuhænu eins og sumir segja, aftan á hálsinn. Svona eins og hún sé á leiðinni upp í eyra. Það má alveg vera smá grænn keimur í kringum hana, eins og gras en það skiptir ekki öllu.

Áhugasamur/söm? :D
-Tinna