Sælt veri fólkið,

Nú var verið að hlaða upp prómó klippunni minni á Jútjúbb og ekki verra þá að hassla sér aðeins völl í kjölfarið, leggja fram kveðjur og hljóta - jafnvel - einhver álit. Ég hef verið nokkuð virkur á öðrum þáttum hér á Huga hingað til (bardagalistum og málmi), en sé ekki hví ég ætti ekki að feta einhver spor hér og kynnast íslensku myndlistarfólki eitthvað betur ef svo má við…

Allavega, þá geta forvitnir athugað síðuna mína sér til dægrastyttingar:

http://www.nekron-art.com/

…Og/eða skoðað klippuna á Youtube:

http://www.youtube.com/watch?v=lubQTTIWbh8

Vitanlega þætti listamaðurinn ágætur ef einhver gerði sér það ómak að segja sitt álit, en þetta eru spennandi tímamót og margt í að snúa…

Kv,

D/N

Í dag sullar Nekron akríl á striga og berst óhikað gegn ásjónu hins merka Olve ‘Abbath’ Eikemo…