Ókei, ég kaupi brúsana mína í Exodus, og núna á ég bara tvo brúsa eftir, rauðann og bláan, en vantar seriously mikið stórann 600 ml chrome ásamt skærgrænum og appelsínugulum. Verk.

Allavega, ég fékk litaspjald hjá Pétri í Exodus þar sem ég bý úti á landi, og panta brúsana bara frá þeim, hringi í þau og segji númerið á litnum sem ég vill, og þau senda mér brúsana svo. Mjög þægilegt.

En þannig er mál með vexti að ég týndi litaspjaldinu, svo ég var að spá hvort það sé hægt að finna nýja Belton Molotow litaspjaldið á netinu?