Í þessum korki ætla ég að segja ykkur frá ævintýrum svarta on the run pennanns míns, og byrjum nú. Ég keypti þennann dýrindispenna á 1200 kall og hann var ekki með neinni kúlu. Krotarinn ZA eða kallakaffi var með mér en hann keypti sér gullpenna. Jæja nóg um það, við fórum á eitthvað yfirgefið plaise á bak við Svart drekann eða eitthvað svoleiðis og byrjuðum að taggast og þá hittum við nokkra dópista og þeir spurðu okkur: er eitthvað þarna að finna? Og ég svaraði Nei!!. Svo fór einn af þeim að tagga og hann taggaði með nickinu kfc og hann gerði eina lélega tilraun til að hnuppla af mér geisladiskum sem að ég hafði verið að kaupa en svo fórum við bara heim. Þar fann mamma mín pennann minn og tók hann af mér. Ég gat mér til og gramsaði í ruslinu og fann kvikyndið þar og nú tveimur mánuðum seinna fann hún hann aftur og henti honum og ég hugsaði: Haha auðvitað er þetta í ruslinu en svo var ekki. :(