ég og félagar mínir tveir vorum að tagga í breiðholtinu á einhverjum leikskóla og þá föttuðum við að það var kona inni og hún bankaði í gluggann, hún var sko inni. Og við bara haha þetta er kona og svona hálf skokkuðum í burtu, ég og einn vinur minn hoppuðum yfir eitthvað grindverk og ég var að flýta mér svo að ég datt á magann þegar ég var kominn yfir, svo leit ég upp og sá þar furðulega feitan karlmann og hann sagði þessa fáránlegu setningu sem að flestir segja þegar að þeir sjá graffari: koddu aðeins og talaðu við mig en þá hljóp ég bara í burtu en hvað varð um þriðjan félagann er óljóst því að hann hljóp að hliðinu sem að var læst.