Já loksins fengum við þetta langþráða áhugamál og verið velkomin á það.

ÉG vona það innilega að það standi fyrir sínu, en þá verðið þið notendur góðir að standa ykkur í stykkinu í að senda inn greinar, myndir, kannanir og fleira og ég skal gera mitt besta í að reyna að halda því gangandi.

Nú þegar hef ég samþykkt kannanir þartil í enda júní og er því engin þörf að senda inn fleiri kannanir í bráð.

Nokkrar myndir eru í bið og verða samþykktar mjög bráðlega, leyfi hinum myndunum að standa í einn til tvo daga áður en ný kemur inn.

Svo megið þið alveg vera dugleg við að koma með góða tengla inn.

Ég læt þetta nægja núna og vona það innilega að þið hafið ánægju af þessu áhugmáli.

Einnig vil ég benda á það að ef einhver vandræði koma upp má alveg hafa samband við mig, til að benda á hluti sem má betur fara eða ef þið hafið einhverjar spurningar.

En og aftur óska ég ykkur til hamingju með nýtt áhugamál og vona að þið hafið gaman að.

Kveðja Swandys8, admin á Myndlist