Núna er nýr titill að koma frá Ellis gamla “Íslandsvini”(hata þetta orð). Ber sá titill það nafn Scars en á samt ekkert skylt með leiknum S.C.A.R.S.

Titill þessi fjallar í grófum dráttum um mann sem hann byggir á einhverri persónu sem hann komst í kynni við á yngri árum. Löggu sem vann í San Francisco og sem var lögga vegna þess að hann vildi gera rétt og breyta hverfinu öllum til bóta. Með öðrum orðum, ekki einhver fáviti á power trippi því að hann ber einhvern skjöld á brjósti sér.
Markmið Ellis er að taka þessa persónu og nauðga henni með keðjusög, og keyra yfir með valtara, kannski ekki alveg bókstaflega en hann ábyrgist að senda þennan karakter í gegnum helvíti og hver veit, kannski til baka. Hljómar eins og gott character study og gaman er að sjá hvernig þessi sería verður.

Hægt er að kíkja á previews á eftirfarandi síðu
<a href="http://www.warrenellis.com/scars.html“ target=”blank">Scars Introduction</a>. Þetta er einnig síðan sem ég fæ heimildir mínar en fyrsta blaðið ætti nú að vera að renna í hlað hjá Nexus mönnum svona fyrir jólin. Okkur til mikilla ánægju, því subbuskapur hentar vel við jólasteikina.
[------------------------------------]