Eins og sumir kanski vita (aftur), þá er að koma Alien vs. Predator bíomynd og á það víst líka að vera heavy mynd, ég held að þetta verði með svona svipuðu ívafi og tölvuleikirnir og myndasögurnar. Eins og margir vita þá er langt síðan Dark Horse comics tóku að sér að gefa út Aliens / Predator og A vs. P blöð og verður þetta örugglega einhver samsteipa af sögum fá þeim.
Persónulega, þá finnst mér allt sem tengist A vs. P eða bara Aliens eða Predator alger snilld! Og ég bíst ekki við lélegri mynd og ég veit að þeir sem hafa spilað leikina eða lesið blöðin geta verið sammála mér um að þetta eigi eftir að vera ótrúlega góð bíómynd. Það eina sem er að gera núna er að bíða og sjá árángurinn hjá framleiðendum myndarinnar.

Ég held að ég sendi ekki meira svona X vs. Y í bili. =)