Já, ég fékk hérna deja vu þegar ég sá eldgamlan link inná tölvupóst frá Nexus um einhverja listasýningu og stuðning við íslenska comic book listamenn. En það var í gamla daga, en nú spyr ég:

Styður Nexus enn íslenska myndasögulistamenn eða er næstum því vonlaust að koma sínum eigin myndasögum í búðir á Íslandi? Ég er ekkert á leiðinni að selja myndasögu, ég er bara forvitin, og gott að vita af þessu í framtíðinni ef maður skyldi nú henda sér í að teikna eina myndasögu :)