Ég vil bara mæla með Nova-seríunni sem er í gangi núna, örugglega með því skemmtilegra frá Marvel þessi misserin. Ég hef lesið fyrstu tvær bækurnar, Annihilation-Conquest og Knowhere. Það eru blöð 1-12 og reka sögu Nova frá því að Annihilation-öldunni linnir. Hörkuskemmtilegar sögur og ekki skemmir að teikningarnar eru algjörlega fyrsta flokks.