Flest allt sem selt er í Nexus er dáldið sem kallast TPB (Trade-Paper-Backs) sem er saman safn af nokkrum blóðum (dæmi: Blablabla Vol. 3: Ish. 13-17) og er því dýrara en venjuleg blöð (vanalega kosta TBP 1400-1600). Samt eru til nokkrar bækur eins og sumar Vertigo, House of M og svoleyðis rugl sem geta verið 7-12 blöð saman og því frekar dýr. Svo eru til HC (Hard-Covers) þau kosta vanalega 2000-og-eitthvað en þau eru ekki það mörg samt. Einstök blöð eru mun ódýrari.
Hins vegar selja Nexus oft margt dýrt en það meiga þeir algerlega þar sem þeir eru eina búðin á landinu sem selur þetta og hafa því enga keppnisaðila.