Þetta er vandamál sem ég held að nokkrir hér kannist við.
Þegar maður er að lesa myndasögur - sérstaklega þær þykku - þarf maður oft að ýta blöðunum alveg niður til að geta lesið allar talblöðrurnar út við miðjuna og það hefur komið fyrir mig að kápan eða partur af kápunni losni frá líminu við þetta.
Er til leið til að laga þetta? Ef svo er: Hver?