Ég var bara svona að pæla hvort það væri einhver hérna sem hefði lesið þessa sögu.
Ég nældi mér í áskrift hjá Nexus að allri Seven Soldier seríunni og ég er búinn að lesa fyrstu tvö blöðin. Það verður nú að segjast að þessi saga er stórskemmtileg og mig hlakkar alveg sjúklega mikið til að sjá meira af þessu.
Höfundurinn er Grant Morrison og í þessum sögum er hann að blása lífi í eldgamlar ofurhetjur sem sáu fyrst dagsins ljós á fimmta áratugnum en féllu svo í gleymskunnar dá og hafa ekki verið notaðar hjá DC fyrr en fyrst núna.
Ég mæli með þessari seríu hún lofar mjög góðu.