Jæja, ég hef, eins og kannski mörg ykkar, tekið eftir því að í þeim fáu greinum sem eru sendar hingað inn, er ekki alveg alltaf hægt að tala um ritsnilldir.

Ekkert illa meint :)

Ég ætla því bjóðast til þess að prófarkalesa greinarnar ykkar og kannski koma með hugmyndir að úrbætum ef mér þykir þær ekki nógu góðar.
Að því gefnu að þær tengist myndasöguáhugamálinu að sjálfsögðu :)

Þannig… ef þið eruð með grein og ekki alveg viss um gæðin, endilega sendið mér skilaboð hér á huga, og ég skal hafa samband!

kv.
Gústi