Veit að þetta á kannski ekki beint heima hérna en í gær sá ég mynd sem hafði þvílík áhrif á mann. Kannski hefur fólk séð hana en hún heitir eins og titillinn á korkinum gefur til kynna “Requiem for a Dream”. Fyrir þá sem hafa einhvern áhuga á að skrifa sögur sem hafa áhrif þá er þessi mynd vægast sagt ótrúleg. Allt er útfært á svo sérstæðan hátt. Meira að segja myndatökuskotin eru mjög sérstök, í raun algjört augnakonfekt.

Vara ykkur samt við, þessi mynd er ekki fyrir veiklynda, þessi mynd rífur úr manni hjartað og stjaksetur það við hliðina á þér.<br><br><a href="http://www.simnet.is/hangar/gif/">Svanurinn-letiblóð og ómagi með meiru</a
[------------------------------------]