Mér hafa borist þær fregnir að Hulk mun ekki láta eins og við þekkjum hann í komandi mynd með honum, sumarið 2003, í leikstjórn Ang Lees.

Samkvæmt heimildum, orðrómum og plot synopsis þá skilst mér að það verður einhvers konar Hulk gen sem berst frá föður Bruce Banner(Hulk) til Bruce. Þar af leiðandi eyðileggja þeir dálítið þetta mythos(goðsögn) í kringum Gamma geislana frægu sem breyttu Bruce Banner í Hulk í teiknimyndasögunum. En það verður víst einungis hægt að bíða og sjá hvernig útkoman verði og eina sem við getum gert er að krossleggja fingur okkar og vonað að útkoman verði einhver snilld. Persónulega treysti ég Ang Lee til að gera eitthvað sniðugt með þjáða kappann og er óhræddur við útkomuna.

Hægt er að finna high resolution trailer á þessu urli:
http://a772.g.akamai.net/7/772/51/dbfd7898d28fda/www.apple.com/trailers/universal/the_hulk/images/hulk_ctp.l.mov
[------------------------------------]