Green Lantern - Rebirth *****SPOILER*****

Ég var að klára að lesa seríuna Green Lantern - Rebirth og finnst mér hún nokkuð skemmtileg.
Ég ætla að byrja á því að útskýra hvað Green Lantern er fyrir þá sem vita minn um málið.

Green Lanterns eru Menn og Konur sem koma hvað að úr alheiminum og bera hring sem kallast hinu einfalda nafni, “Power Ring”. Þessir hringir gefa þessum Green lanterns mátt til þess að gera nánast hvað sem er og er kraftur hans byggður á hugmyndaflugi og viljastyrk þess sem að ber hann.
Það hafa verið nokrrir Green Lanterns sem hafa séð um verndun jarðarinnar, og þar á meðal Kyle Reyner, John Stewart, Guy Gardner og Hal Jordan.


Hal Jordan var gefinn hringurinn sinn þegar að geimveran Abin Sur hrapaði á jörðu og leitaði uppi heiðarlegann mann til að gefa hringinn áður en hann dæi. Sá maður var Hal Jordan
En einn daginn þá var heimabær Hal Jordans Coast City, lagður í rúst af illu geimverunni Mongul. Hal reyndi þá í sorg sinni að byggja borgina aftur með hringnum, en The guardians (þeir sem sköpuðu hringina) voru ekki ánægðir með svona sjálfselska notkun á hringnum og skipuðu Hal að koma til plánetu þeirra, Oa, og sæta réttarhöld.
Hann varð reiður og geðveikur, og réðst á hina meðlimina í Green Lantern Corps og myrti þá marga. Síðan kastaði hann af sér titlinum Green Lantern og tók upp nafnið Parallax. Hann var síðan sigraður af nokkrum ofurhetjum. Síðan kom að því að það slökknaði á sólinni(man ekki alveg afhverju) en Parallax a.k.a. Hal Jordan kveikti aftur á henni og dó við það.
Eða allavega líkami hans. Hann kom síðan aftur sem Vofa hefndarinnar þekkt sem The Spectre en var í raun ekki lifandi.
Þarna hefst sagan Green Lantern - Rebirth. Þar sér maður Hal Jordan reyna að slíta sig frá The Spectre og kemst að því að hann er í raun þrjár persónur, Green Lantern, Parallax og The Spectre.

En líkami Hal Jordan er í gæslu Kyle Reiner go Ganthet, sem er einn af The Guardians.
Síðan byrja allt í einu allir Green Lanternarnir að flippa og ráðast á Justice league meðlimi og láta eins og brjálæðingar.

Þá kemur í ljós að Hal Jordan var ekki geðveikur, heldur var hann sýktur af veiru sem heitir einmitt Parallax, þegar hann komst lokins að The guardians til að hefna sín þá frelsaði hann óvart Parallax algjörlega og Parallax tók sér Bólfestu í honum. Svo að það var ekki Hal Jordan sem myrti alla þessa GLC, heldur var það Parallax. En núna var parallax að sýkja alla hina green lanterns og reyna að ná völdum yfir heiminum.

En á endanum þá hjálpar The Spectre Hal við að brjóta seid frá parallax og hverfur síðan. Þá er Spectre horfinn og sál Hal Jordan frjáls.
Og parallax kominn í sitt rétta form (gult ljótt drekakvikindi) en Líkami Hal Jordan er í kistu í bækistöðvum JLA og þar eru Kyle Reyner og Green Arrow að berjast við þorparann Sinestro, sem er fyrrverandi Green Lantern. Þá fer hringur Hals af fingri Green Arrow sem var að geyma hann, og ofan í kistuna, og þá rís uppá Hal Jordan. Green Lantern, einn sá öflugasti sem hefur verið uppi.
En hann og Sinestro berjast síðan í mjög svölum bardaga (tek það fram að öll bókin er mjög flott teiknuð og lituð) og endar það með því að Hal og Kyle ná saman að sigra Sinestro sem flýr í einherja fjarlæga vídd.

En ekki er allt búið enn. Parallax hefur valið sér næsta hýsil og mun það vera Ganther sem er einn af The Guardians og er mjög öflugur. En eftir að það gerist taka allir green lanternarnir sig saman undir forrystu Hal Jordan og Sigra hann.
Hal Jordan tekur aftur upp sitt gamla líf sem Green Lantern og er sú saga enn í gangi.

Þetta var mín grein sem THT3000 hvatti mig til að gera… nennti ekki að fara yfir hana þannig hún gæti verið eikkað leiðinleg og ruglingsleg en hún er mun betri en ekkert :)