Ef einhver hefur lesið Sandman er hann ekki í vafa um að það er góð saga. Hefur einhver lesið Sandman?
ÉG hef verið að dunda mér við það hægt og rólega að kaupa þessar bækur og lesa og finnst þær þvílík snilld. Sagan á bakvið þær er svo góð enda er Niel Gayman frábær höfundur.

En já Sandman er bók sem fjallar um draumakónginn og í fyrstu bókinni er hann náður þegar dulrænt leynifélag reynir að ná systur hans, sem er Dauðinn, en nær óvart í Drauminn. Svo hefst ævintýrið við að ná aftur eignum sínum sem er meira en lítið verkefni. Í annarri bók er það bróðir-systir hans Örlög sem er að atast í Draumakóngnum. En systkinin heita á ensku Dream, Death, Destini og svo framvegis sem allt byrjar á d. En í hverri bók er tekið á aðeins öðru sviði í lífi draumakóngsins. Einfaldlega frábærar bækur.

Vil ekki segja mikið meira nema það að ég hvet alla til að lesa þessar ótrúlega-skemmtilegu myndasögu-bækur sem hafa sinn dulræna undirtón.
this is all I will say now