Ég ætla svolítið að röfla um hluti hérna á myndasöguáhugamálinu. Í fyrsta lagi var könnun samþykkt sem mér finnst alveg út í hróa hött.

Hver myndi vinna ef hann færi í slag hét hún. Íslag við hvern?

Sá sem gerði þessa könnun skrifaði síðan Daredevil Deardevil og Captain America Captin A.

Er allt orðið svo vonlaust hér að hvaða bull sem er er samþykkt. Ásamt þessu eru helling af greinum sem segja svó lítið. Einsog bara um hvað Daredevil er og hvaða myndasögur koma frá Dc comics og þar eftir götunum.

Mér finnst þetta vera einsog að segja afhverju við þurfum að borða eða hvaðan Pilsner kemur eða þannig.

Hvernig væri nú að vanda sig?

allaveganna-friður sé með ykkur-