Imp og félagar Góðan daginn kæru hugarar og myndasögu unnendur. Ég er Imp og hef lengi vel verið unnandi net myndasagna eða online comics og í gær hóf ég að vinna að nýrri myndasögu sem að kallast Imp og Félagar. Hún er byggð upp í kringum lítið og nett forum sem að ég bjó til bara til að þjóna þessum tilgangi, ég hef nú þegar lokið við tvær myndasögur og ég er að leita að fleira fólki til að ganga við liðs við félagana og því ætla ég að selja ykkur vöruna í þessari grein!

Með því að fara í Imp og Félaga getur þú orðið frægur í gegnum það að vera niðurlægð(ur) á netinu undir leyninafni þannig að þú getur ákveðið hvort þú viljir taka það á þig eða þá bara gert grín að þér með félögum og afneitað skömminni.

Myndasagan er tæknilega séð gagnvirk og sannsöguleg, hún snýst um það sem gerist á foruminu, það sem er sagt og rætt svo framarlega sem að það er hægt að finna húmor í því einhverstaðar. Einnig getur þú komið með óskamynd í kynningar postinum til að láta mig reyna að krassa eftir.

Ef að þetta keypti ekki sálu þína verð ég að flengja andskotann, en þeir sem að hafa áhuga komið endilega á: www.totally-imp.tk, skráið ykkur og byrjið að posta eins og vitleysingjar.