Lettar unnu Evrópusöngvakeppnina


Söngkonan Marie N frá Lettlandi varð hlutskörpust í Evrópusöngvakeppninni sem haldin var í Tallinn í Eistlandi í kvöld. Mikil keppni var á milli Letta og Maltverja um sigurinn en á endanum fengu Lettar 12 stig frá nágrönnum sínum Litháum og hlutu alls 176 stig en Malta 164.