Á þessum tíma síðustu 2-3 árin hef ég leitað af lagi sem ég heyrði stundum í sjónvarpinu þegar ég var um 6-7 ára aldurinn.

Þetta var jólalag þar sem nokkrir litlir krakkar eru saman og einn þeirra, strákur með derhúfu að syngja. Mig minnir að þau byrja upp á húsi í laginu, fara niður í stomp og fyrr en varir eru þau búinn að minka svo þau komist í dúkkuhús og eru að syngja þar. Eina setningin sem ég man úr þessu lagi er þegar strákurinn segir “come on everybody” það er ekki meira :).

Bætt við 31. október 2011 - 22:11
btw. lagið var í sjónvarpinu 1994-6