svarið er NEI!
ég hef lengi vel viljað halda að Gearmanndude, sem gerir fjölmörg og góð pedala-review á youtube, sé í raun Jack Black. Ég hef ekkert verið einn um það. Netið er fullt af fólki sem trúir því statt og stöðugt.
En eftir smá google-törn hef ég komist að því að Gearmanndude heitir Eric Whorton og vinnur í Guitar Emporium í Louisville og spilar á gítar í hljómsveitinni El Rooster.
hér er hann, hægra megin á sviðinu. Meira að segja með Dr.Z magnarann sem hann notar oftast í pedala-reviewin sín.
http://www.youtube.com/watch?v=SKuUIDbfhBc
Ég gæti haft rangt fyrir mér. En ef svo er, prove me wrong.