það var lag í útvarpinu áðan ég held með andreu gylfa og það var um gleymmérei. það var rosafallegt og mig langaði til að finna textann, þar sem ég hlustaði bara með öðru eyranu og náði honum ekki alveg.

vandinn er að ég heyri ekki hvað lagið heitir og það er fáránlega erfitt að finna íslensk lög ef eina sem þú mannst er gleymmérei, það er haust (held að það var það sem hún söng)…

kannast einhver við þetta lag?